Ísafjörður Guide

ByggingarFerðir

Ísafjarðarganga –  ferð í gegnum tímann

Á Ísafirði, höfuðstað Vestfjarða,  er  vel varðveittur miðbær með húsum frá 19. öld sem endurspegla m.a. útgerðar- og verslunarsögu staðarins og fólksins sem þar bjó.

Leiðsögukonan sem er klædd eins og fiskverkakona á 19. öld  hittir ykkur við upplýsingamiðstöð ferðamanna í bænum.  Hún leiðir ykkur í gegnum gamla bæinn og síðan upp í hlíðina fyrir ofan bæinn þar sem er heillandi útsýni yfir fjörðinn. Hún sýnir áhugaverða staði, gefur innsýn inn í sögu Ísafjarðar og segir sögur og sagnir úr fortíð og nútíð, svo sem fólkinu sem þar bjó en einnig af álfum, tröllum og draugum. Þú færð auk þess góða kynningu á jarðfræði og gróðurfari Vestfjarða og virkni snjóflóðavarna. Á leiðinni deilir leiðsögukonan nestisboxi sínu með þáttakendum. Gangan endar við Ísafjarðarkirkju.

Lengd ferðarinnar er um 2 klst. Stærð hópa: 2-12 þátttalendur. Í lok ferðarinnar er gefinn kostur á því að lengja ferðina um eina klukkustund til að fræðast um eftirfarandi:

  • Jarðsaga og jarðfræði
  • Gróður Vestfjarða eða haustlitir
  • Náttúruganga
  • Komdu að smakka

Einnig hægt að panta þessar ferðir eingöngu og er þá lengd  þeirra 3-5 klst.

Persónuleg leiðsögn og aðrar sérferðir samkvæmt beiðni.


Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:

  1.  Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira  um sögu svæðisins.
  2.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  3.  Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
  4.  Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
  5.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  6.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
  7.  Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  8.  Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  9.  Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
  10.  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Seljalandsvegi 85, 400 Ísafjörður
contact@isafjordurguide.is
www.isafjordurguide.is
845 0875
Opnunartímar:

Þjónusta allt árið.

GönguleiðirLeiðsögn
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is