There are no translations available.
Aðalfundur samtakanna var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudaginn 4. maí, kl. 10-12. Mjög góð mæting var á aðalfundinn og skemmtilegar umræður spunnust um starfsemi samtakanna. Í skýrslu formanns, Rögnvalds Guðmundssonar kom m.a. fram að á síðasta ári voru endurútgefnir bæklingar samtakanna með nýju sniði. Lokið var vinnu við gæðaviðmið samtakanna og þau tengjast Vakanum, gæðaviðmiðum íslenskrar ferðaþjónustu. Iðnaðarráðuneytið hefur gert nýjan tveggja ára samning við samtökin auk þess sem þau hafa starfsmann í fjórðungsstarfi fyrir sig hjá Ferðamálastofu. Samtökin eru virkur aðili í alþjóðlegum samtökum Destination Viking Association og er unnið að því að þau samtök fái umsjón með verkefninu Cultural Viking Trail of Europe. Kynning á SSF hefur verið sett upp í Víkingaheimum í Reykjanesbæ.
Kosin var ný stjórn á aðalfundinum. Rögnvaldur var einróma kosinn sem formaður áfram til næsta árs. Aðrir stjórnarmenn eru aðalmenn Skúli Björn Gunnarsson, Guðbrandur Benediktsson, Sara Regína Valdemarsdóttir og Ólafur Valgeirsson. Varamenn Þórir Örn Guðmundsson og Dagný Emilsdóttir. Ársreikningar voru lagðir fyrir fundinn og samþykktir. Þá var rætt um starfsáætlun og fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2012.
