Landnámssetrið í Borganesi. Vegna fjölda áskoranna höfum við ákveðið að efna til aukasýninga á skáldavökunni um Feðgana frá Kirkjubóli 21. og 22. apríl. Kl 17 segir Silja Aðalsteinsdóttir frá Guðmundi Böðvarssyni og konunum sem voru áhrifavaldar í lífi hans. Kl. 20 segir Böðvar svo sögur úr Síðunni - sveit sem ekki er til. Í hléinu á milli sýninganna er tilvalið að fá sér ljúffengar og matarmiklar súpur. Í boði er bæði fiskisúpa og tómatlöguð kjötsúpa fyrir kr. 2500.- Miðaverð er kr. 3000 fyrir báðar sýningarnar en kr. 2000 ef aðeins önnur er valin. Miðasala er hafin.