Abandoned houses in Iceland
Út er komið ritið Eyðibýli á Íslandi, 1. bindi. Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Austur-Skaftafellssýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu sumarið 2011. Ritið fjallar á faglegan hátt um 103 eyðibýli og yfirgefin hús á þessu svæði og er framsetning texta og ljósmynda mjög vönduð. Það er í brotinu A4 og er 136 bls. að stærð. Stefnt er að því að rannsóknin haldi markvisst áfram næstu ár og smám saman verði til heildarúttekt á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í sveitum landsins.
Ritið er gefið út í litlu upplagi af áhugamannafélagi sem stendur fyrir rannsóknunum. Hægt er að kaupa eintak á 5.000 kr. hjá R3-Ráðgjöf, Síðumúla 33 Reykjavík og styðja um leið við áframhaldandi rannsóknir á eyðibýlum landsins. Einnig er hægt að fá ritið sent með reikningi. Pantanir sendist á netfangið: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it með upplýsingum um nafn, kennitölu og heimilisfang.
Hér neðanvið er opna úr ritinu.





