There are no translations available.

sturlungalogo  Á Sturlungaslóð
sagatrailsafnR-minjastadurleidsogninfogonguferdirgistingveitingarsalerni
sturlungakross

Hefur þú áhuga á að koma við á stöðum sem tengjast ógurlegum atburðum á Sturlungaöld? Viltu fá að vita eitthvað um söguna, um litríkar persónur hennar og örlagaríka atburði? Þá skaltu koma Á Sturlungaslóð í Skagafirði. Sturlungaöldin, eins og 13. öldin var kölluð, er kennd við átök vestlenskra höfðingja af ætt Sturlunga við höfðingja af ætt Ásbirninga sem öllu réðu í Skagafirði, og aðrar gamlar og rótgrónar valdaættir. Þar inn í fléttuðust vaxandi áhrif kirkjunnar og árekstrar við Guðmund góða Arason Hólabiskup. Þú getur m.a. komið við á Örlygsstöðum, Haugsnesi, Flugumýri, Hólum, Hegranesþingstað, Glaumbæ og Víðimýri.

 

 

Á helstu viðkomnustöðum Sturlungaslóðar eru upplýsingaskilti. Upplagt er að hafa með sér sögukort Sturlungaslóðar. Þá geta hópar pantað leiðsögn um þessa sögustaði á vegum Sturlungaslóðar. Velkominn á Sturlungaslóð í Skagafirði.

Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð er 95 km frá Akureyri   


Vefsíða:  www.sturlungaslod.is   

Netfang: Cette adresse email est protégée contre les robots des spammeurs, vous devez activer Javascript pour la voir.


banner_sturl     

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is