logo  Reykholt
sagatrailsafnR-minjastadurleidsogninfominjasalagonguferdirgistingveitingarsalerni Sagnaritarinn mikli og arfleifð hans
snorralaug

Reykholt er einn sögufrægasti staður á Íslandi, merkur kirkjustaður og menningarmiðstöð um aldir. Sagnaritarinn, fræðimaðurinn og höfðinginn Snorri Sturluson settist að í Reykholti 1206 og var veginn þar haustið 1241.Talið er að í Reykholti hafi Snorri samið sín helstu verk, Heimskringlu (sögu Noregskonunga), Snorra-Eddu (kennslubók í norrænni giðafræði og ljóðlist) og Egils sögu. Í Reykholti eru merkar fornminjar frá miðöldum, þar á meðal Snorralaug, elsta mannvirki á Íslandi, en einnig jarðgöng , bæjar - og kirkjurústir. Umfangsmiklar fornleifarannsóknir hafa verið stundaðar í Reykholti á allra síðustu árum. Menningar- og miðaldasetrið Snorrastofa býður upp á sögusýningar, fyrirlestra og leiðsögn. Þar er gestaíbúð fyrir fræðimenn og aðstaða  fyrir ráðstefnur og mannamót og minjagripaverslun. Í Snorrastofu er einnig lítil verslun með íslenskt handverk og  listmuni og bækur um sagnfræði og bókmenntir. Fjölbreytt tónleikahald er í Reykholtskirkju. Mikill jarðhiti er í Reykholti og þar er heilsárs hótel og verslun.

 

Reykholtshátíð er haldin
síðustu helgina í júlí.

Snorrastofa er opin:
1/5-30/8 alla daga kl.10:00-18:00
1/9-30/4 virka daga kl. 10:00-17:00.
Annars eftir samkomulagi

108 km frá Reykjavík


Sími:  433 8000

Vefsíða:  www.snorrastofa.is

Netföng:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

banner_reykh     

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is