Iceland Saga Trail

Sjá mánuð
Sjá mánuð
Einfalt snið
Einfalt snið
Sjá viku
Sjá viku
Sjá dag
Sjá dag
Flokkar
Flokkar
Leit
Leit
Atburður: 'Skálholtshátíð 2012' Print
  General
This is the default category
Dagsetning: Fimmtudagur, júlí 19, 2012 At 07:30 eh

Skálholtshátíð 2012

Skálholtshátíð verður haldin 19. – 22. júlí 2012. Í ár verður hún með öðru sniði en áður og nær hún yfir fleiri daga og verkefni hennar eru fleiri og margvíslegri.  Fyrir liggur fjölbreytt dagskrá.

 

Fræðslu- og skemmtidagskrá -miðaldadagur fjölskyldunnar- á Skálholtshátíð fyrir alla fjölskylduna verður laugardaginn 21. júlí.
Boðið verður upp á stuttar göngur undir leiðsögn kunnáttufólks, m.a. skólagöngu, grasagöngu og fuglagöngu. Farið verður í leiki sem voru vel þekktir s.s. Köttur og mús, að stökkva yfir sauðarlegg og boðhlaup.
Möguleiki er á að þekktar persónur miðalda skjóti upp kollinum og verður hægt að slást í för með þeim um hin fornu hlöð í Skálholti, íklædd skikkjum eða höfuðbúnaði þess tíma.
Markaðstorg með lífrænum afurðum og fjölbreyttu úrvali verður alla helgina og einnig verður hægt að kaupa veitingar s.s. máltíð skólasveina, kaffihlaðborð biskupsfrúarinnar og miðaldamjöð.

Sönghópurinn Voces Thules syngur Þorlákstíðir og saltarasöngva frá 17. öld í Skálholtskirkju og messað verður við Þorlákssæti kl. 12 að hádegi á hinni eiginlegu Þorláksmessu að sumri, föstudaginn 20. júlí. Á sunnudag 22. júlí verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00 í Skálholtskirkju, messukaffi og dagskrá kl. 16.15

Nánari dagskrá má sjá á http://skalholt.is/2012/06/11/skalholtshatid-2012



Leita í dagatali

IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is