Miðaldastofa - The Saga-Steads of Iceland

Emily LethbridgeStrengleikar - Miðaldastofa Hugvísindastofnunar

Emily Lethbridge flytur 'The Saga-Steads of Iceland' Project í Árnagarði 423, fimmtudaginn 20. október, kl. 16:30

Í fyrirlestrinum fjallar Lethbridge um árlanga rannsóknarferð sína um landið þar sem hún les Íslendingasögur hverja af annarri á söguslóð. Í bakgrunni standa sagnaferðir manna á nítjándu öld og fyrri hluta þeirra tuttugustu, „pílagríma“ á borð við William Gershom Collingwood og William Morris. Rannsóknin snýr ekki síst að vitnisburði héraðsmanna um staðhætti og örnefni sagnanna, söguvitund þeirra, munnlega sagnahefð og hlutskipti sagnanna í nútímamenningu. Hægt er að fylgjast með framgangi rannsóknarinnar á slóðinni http://sagasteads.blogspot.com.

 
Emily Lethbridge er fræðafélagi við deild engilsaxneskra, norrænna og keltneskra fræða við Kamsbrú, þaðan sem hún lauk doktorsprófi 2008.
 
[Léttar veigar á kostnaðarverði að fyrirlestri loknum og umræður.]

Á slóðum bókanna

 Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 22. – 23. október næstkomandi. Markmið með málþinginu er að vekja athygli á því hvernig hægt er að gera bókmenntaarfinn og nútímabókmenntir að aflvaka nýrra tækifæra í ferðaþjónustu á Íslandi.

 Á þinginu fer fram samræða á milli forystumanna í samtökum ferðaþjónustu, rekstraraðila í ferðaþjónustu, menningarfræðinga, rithöfunda og bókmenntafræðinga. Vonir standa til að hægt verði að segja fréttir af bókamessunni í Frankfurt sem þá er nýlokið.

 Málþing í Þórbergssetri eru árlegur viðburður. Þar er ævinlega reynt að blanda saman skemmtun, fróðleik, útiveru og notalegri samveru. Svo verður einnig nú og fyrirlesara lofa skemmtilegri dagskrá þar sem  persónur sagnanna  birtast ljóslifandi og náttúruskoðun fær á sig skáldsagnakenndan blæ.

 Dagskrá

Laugardaginn 22. október.
15:00 Málþingið sett
15:15 Ávarp;  Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
15:30 Bókmenntir á aðventu: Skúli Björn Gunnarsson Gunnarsstofnun
16:00 Orðsins list: Saga og sögur Guðrún Helgadóttir Háskólanum á Hólum

16:30 Umræður,

17:00 Erindi

17:30 Skoðunarferð um Þórbergssetur
19:00 Kvöldverður
20:30 Kvöldstund í Þórbergssetri


 Sunnudaginn 23. október.

 
9:00    Morgunhressing og morgunganga meðal steinanna, sem tala.
10:15 Á slóðum Guðríðar og Hallgríms: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur
10:45 Veruleiki skáldskaparins Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur Háskólasetur Hornafjarðar
11:15 Fræðandi ferðalög, upplifun, skilningur eða skemmtun; Þorvarður Árnason Háskólasetur  

11:45 Að búa í heimi skáldævisögunnar; Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetur
12:10 Umræður
12:40 Hádegisverður og málþingslok

Málþingsgjald er  kr 7000, innifalið kaffi, kvöldverður og hádegisverður
Bókanir á  netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nánar...

Félagsfundur að Núpi

Samtökin munu halda sinn árlega félagsfund að hausti að Núpi í Dýrafirði dagana 30. september og 1. október. Auk þess að funda um málefni félagsins verður eitt og annað gert til skemmtunar og fróðleiks. M.a. verður farið að Hrafnseyri og skoðuð ný sýning um Jón Sigurðsson forseta og kíkt við í Haukadal og á Þingeyri. Einnig verður Melrakkasetrið í Súðavík skoðað. Á laugardeginum verður haldið opið Málþing með yfirskriftinni "Fjölbreytileiki menningararfsins á Vestfjörðum" frá klukkan 13:00 - 15:15. Sjá nánar í meðfylgjandi dagskrá.

 

 

 

Attachments:
Download this file (Núpur dagskrá.pdf)Núpur dagskrá.pdf345 Kb

Nánar...

Söguferðaþjónusta 2011

 

 

 

 

Fleiri greinar...
IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is