
Rögnvaldur Guðmundsson form. SSF og Jedrzej Jan Spiewak.
Verðlaun veitt í Söguslóðaleik SSF
Dregið hefur verið úr innsendum kortum í Söguslóðaleik SSF sumarið 2010. Fyrstu verðlaun hreppti Pólverjinn Jedrzej Jan Spiewak sem ferðaðist um allt land sl. sumar og fékk stimpla á fjölda sögustaða á kortið sitt. Í hans hlut kom flugferð innanlands með Flugfélagi Íslands, pakki með nýútkomnum Sögukortum landshlutanna og að sjálfsögðu ljúffengt súkkulaði með merki SSF. Verðlaunaafhending fór fram í Sögusafninu í Perlunni fimmtudaginn 28. október. Önnur og þriðju verðlaun sem voru Sögukort landshlutanna féllu í skaut ferðalöngum frá Þýskalandi og Spáni. Samtökin óska þeim heppnu til hamingju með verðlaunin og öllum þeim sem sendu inn stimpluð kort er þökkuð þátttakan. Rétt er að minna á að leikurinn er enn í gangi og aftur verður dregið út þegar nálgast vorið.
Hér á eftir fylgir skemmtileg frásögn frá Jedrzej Jan Spiewak: