Fréttir 2011

Söguferðaþjónusta 2011

 

 

 

 

Söguslóðir 2011

 

 

Í tilefni af 5 ára afmæli samtakanna verða haldnir stórir viðburðir á vegum samtakanna í samvinnu við Norræna húsið dagana 29. og 30. apríl.

Hið árlega málþing samtakanna, Söguslóðir 2011 verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl frá 14:00 - 17:00. Fjallað verður um upplifun og þátttöku gesta í starfi safna og setra og hvernig gesturinn getur ferðast aftur til fortíðar með upplifun á hverjum stað. Aðal fyrirlesarar koma frá Svíþjóð þar sem þau hafa m.a. séð um rekstur á járnaldarstað sem er rekinn með starfsemi fyrir ferðamenn allt árið. Einnig kynnir Listaháskólinn upplifiunarhönnun og verkefni sem snúa að því að færa gestunum söguna á fjölbreyttan hátt í gegnum, hönnun, veitingar og aðra vöruþróun. Þá verða nokkur styttri en einnig mjög áhugaverð erindi.

 

Attachments:
Download this file (SSF A4 augl.pdf)Soguslodir20113048 Kb

Nánar...

Starfskraftar samtakanna

Samtökin hafa fengið starfskrafta til liðs við sig.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir, sem er starfsmaður Ferðamálastofu, hefur nú hafið störf fyrir SSF í 25% starfshlutfalli. Hún mun m.a. koma að eflingu samskipta við ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur innanlands sem erlendis, gæðamálum SSF, vinna að blaðamannaferðum fyrir samtökin og úttekt á möguleikum söguslóðaferða á Íslandi.  

Þá hefur stjórn SSF gert verkefnasamning við Pétur Jónsson. Pétur mun hafa umsjón með útgáfu bæklinga SSF á árinu, lagfæringum og þróun á heimasíðu samtakanna, vinna að undirbúningi "Söguslóða 2011" í Norræna Húsinu 29.-30. apríl komandi og útvarpsauglýsingum sumarið 2011.

Auk þessara verkefna má nefna að stjórnin er að skoða möguleikana á útgáfu vandaðs CD disks og einnig er stefnt að öflugri þátttöku samtakanna á  bókamessunni í Frankfurt í október.


Samningur við iðnaðarráðherra

undirritun

Samtökin héldu félagsfund að Hvolsvelli dagana 13.-15. janúar sl. Á fundinum voru línur lagðar fyrir starfið á árinu með góðri vinnu í hópum sem tóku á nýsköpun og vöruþróun, kynningar-, fræðslu- og gæðamálum. Félagsmenn brugðu sér síðan að Skógum og fengu leiðsögn hjá Þórði Tómassyni auk þess sem Sögusetrið var heimsótt og snæddur kvöldverður í veislusalnum þar.

Í fundarlok, laugardaginn 15. jan., var undirritaður samstarfssamningur Iðnaðarráðherra.

 

Nánar...

Fleiri greinar...
IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is