Fréttir 2012

Fornleifar í Gotlandi

There are no translations available.

Gotland er eyja í Eystrasalti sem tilheyrir Svíþjóð og þar er að finna gífurlega mikið magn af minjum frá Víkingatímanum, enda var Gotland mjög mikilvægur verslunarstaður við Eystrasaltið á miðöldum.

Les mer …

Grein í Independent

There are no translations available.

Verðlaunarithöfundurinn David Mitchell ferðaðist um Ísland á síðasta ári á vegum ferðaskrifstofunnar Discover The World. Eftir ferðina skrifaði hann mjög áhugaverða grein um Íslendingasögurnar og íslenska sögustaði sem nýlega hefur birst í tímaritinu The Independent í Bretlandi. Ferðin var farin á vegum ferðaskrifstofunnar og í samstarfi við Ferðamálastofu og Samtök um söguferðaþjónustu. Greinina má finna á vefnum www.independent.co.uk

Sólstöðuhátíð Víkinga á Fjörukránni 2012

There are no translations available.

Sólstöðu hátíð Víkinga verður haldinn á Fjörukránni í Hafnarfirði 14 til 17 júní 2012

Hátíðin er fjölskylduhátíð og þar verður margt um að vera. Víkingamarkaður, handverks og bardagavíkingar, fornir leikir, glíma, bogfimi og axarköst  fjölistamenn, víkingaskóli fyrir börn, brúðkaup að hætti víkinga, víkingatónlist, eldsteikt lamb, víkingaveislur, kvöldvaka að hætti víkinga, dansleikir, o.fl.o.fl.

Les mer …

Viking Cultural Route of Europe

There are no translations available.

Sú ánægjulega ákvörðun hefur verið tilkynnt að European Institute of Cultural Routes hefur valið samtökin Destination Viking Association (DVA) til að vera formlegur umsjónaraðili með Viking Cultural Route of Europe.

Les mer …

Aðalfundur 2012

There are no translations available.

Aðalfundur samtakanna var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudaginn 4. maí, kl. 10-12. Mjög góð mæting var á aðalfundinn og skemmtilegar umræður spunnust um starfsemi samtakanna. Í skýrslu formanns, Rögnvalds Guðmundssonar kom m.a. fram að á síðasta ári voru endurútgefnir bæklingar samtakanna með nýju sniði. Lokið var vinnu við gæðaviðmið samtakanna og þau tengjast Vakanum, gæðaviðmiðum íslenskrar ferðaþjónustu. Iðnaðarráðuneytið hefur gert nýjan tveggja ára samning við samtökin auk þess sem þau hafa starfsmann í fjórðungsstarfi fyrir sig hjá Ferðamálastofu. Samtökin eru virkur aðili í alþjóðlegum samtökum Destination Viking Association og er unnið að því að þau samtök fái umsjón með verkefninu Cultural Viking Trail of Europe. Kynning á SSF hefur verið sett upp í Víkingaheimum í Reykjanesbæ.
Kosin var ný stjórn á aðalfundinum. Rögnvaldur var einróma kosinn sem formaður áfram til næsta árs. Aðrir stjórnarmenn eru aðalmenn Skúli Björn Gunnarsson, Guðbrandur Benediktsson, Sara Regína Valdemarsdóttir og Ólafur Valgeirsson. Varamenn Þórir Örn Guðmundsson og Dagný Emilsdóttir. Ársreikningar voru lagðir fyrir fundinn og samþykktir. Þá var rætt um starfsáætlun og fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2012.

 

 

 

 

Flere artikler …
IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is