Söguslóðir 2011

There are no translations available.

 

 

Í tilefni af 5 ára afmæli samtakanna verða haldnir stórir viðburðir á vegum samtakanna í samvinnu við Norræna húsið dagana 29. og 30. apríl.

Hið árlega málþing samtakanna, Söguslóðir 2011 verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl frá 14:00 - 17:00. Fjallað verður um upplifun og þátttöku gesta í starfi safna og setra og hvernig gesturinn getur ferðast aftur til fortíðar með upplifun á hverjum stað. Aðal fyrirlesarar koma frá Svíþjóð þar sem þau hafa m.a. séð um rekstur á járnaldarstað sem er rekinn með starfsemi fyrir ferðamenn allt árið. Einnig kynnir Listaháskólinn upplifiunarhönnun og verkefni sem snúa að því að færa gestunum söguna á fjölbreyttan hátt í gegnum, hönnun, veitingar og aðra vöruþróun. Þá verða nokkur styttri en einnig mjög áhugaverð erindi.

 

Attachments:
Download this file (SSF A4 augl.pdf)Soguslodir20113048 Kb

Les mer …

Starfskraftar samtakanna

There are no translations available.

Samtökin hafa fengið starfskrafta til liðs við sig.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir, sem er starfsmaður Ferðamálastofu, hefur nú hafið störf fyrir SSF í 25% starfshlutfalli. Hún mun m.a. koma að eflingu samskipta við ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur innanlands sem erlendis, gæðamálum SSF, vinna að blaðamannaferðum fyrir samtökin og úttekt á möguleikum söguslóðaferða á Íslandi.  

Þá hefur stjórn SSF gert verkefnasamning við Pétur Jónsson. Pétur mun hafa umsjón með útgáfu bæklinga SSF á árinu, lagfæringum og þróun á heimasíðu samtakanna, vinna að undirbúningi "Söguslóða 2011" í Norræna Húsinu 29.-30. apríl komandi og útvarpsauglýsingum sumarið 2011.

Auk þessara verkefna má nefna að stjórnin er að skoða möguleikana á útgáfu vandaðs CD disks og einnig er stefnt að öflugri þátttöku samtakanna á  bókamessunni í Frankfurt í október.


Samningur við iðnaðarráðherra

There are no translations available.

undirritun

Samtökin héldu félagsfund að Hvolsvelli dagana 13.-15. janúar sl. Á fundinum voru línur lagðar fyrir starfið á árinu með góðri vinnu í hópum sem tóku á nýsköpun og vöruþróun, kynningar-, fræðslu- og gæðamálum. Félagsmenn brugðu sér síðan að Skógum og fengu leiðsögn hjá Þórði Tómassyni auk þess sem Sögusetrið var heimsótt og snæddur kvöldverður í veislusalnum þar.

Í fundarlok, laugardaginn 15. jan., var undirritaður samstarfssamningur Iðnaðarráðherra.

 

Les mer …

Félagsfundur á Hvolsvelli

There are no translations available.

Dagana 13.-15. janúar verður félagsfundur SSF haldinn á Hvolsvelli. Þar munu vinnuhópar leggja línur fyrir starf ársins en auk þess verður opið málþing á föstudeginum kl. 16-18. Fundurinn fer fram á Hótel Hvolsvelli en einnig verður farið í skoðunarferðir til sunnlenskra sögustaða. Skráning hjá Ásborgu ( Denne e-postadressen er beskyttet mot programmer som samler e-postadresser. Du må aktivere JavaScript for å kunne se adressen ).  Sjá nánar um dagskrá í fylgiskjali.
Attachments:
Download this file (SSFHvolsvelli.pdf)SSFHvolsvelli.pdf256 Kb
IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu   /   Icelandic SagaTrail Association

Verein Isländischer Geschichtstourismus  /  Organisasjonen for sagaturisme på Island

www.sagatrail.is | info@sagatrail.is