Hljóðleiðsögn um Vatnsdalinn
Út er komin geisladiskur með leiðsögn um Vatnsdalinn. Diskurinn er gefinn út af félaginu Landnám Ingimundar gamla og er um 70 mínútna langur. Á diskinum er blandað saman tónlist og upplestri. Diskurinn er hugsaður fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um Vatnsdalinn sem geta keyrt um dalinn og um leið hlustað á diskinn í spilaranum í bílnum. Sagt er frá fjölmörgu áhugaverðu á leiðinni og hefst leiðsögnin á frásögn af landnámi Ingimundar gamla og Þingeyrakirkju en heldur síðan inn Vatnsdalshólana og hringinn í dalnum og er fjallað um það helsta sem fyrir augu ber á leiðinni. Hljóðleiðsögnin er gefinn út bæði á íslensku og ensku á sitthvorum diskinum.
Hljóðleiðsögnin skiptist upp í nokkra kafla og á milli þeirra og í upphafi og enda disksins er tónlist sem Bára Grímsdóttir sá um að velja, semja og útsetja fyrir diskinn. Allir textar og tónlistin er tengd Vatnsdalnum, gömul þjóðlög, rímur og vísur um Vatnsdalinn.
Hljóðleiðsögn um Vatnsdalinn verður til sölu í verslunum víða um land, en einnig verður hægt að panta eintök með því að senda tölvupóst á Denne e-postadressen er beskyttet mot programmer som samler e-postadresser. Du må aktivere JavaScript for å kunne se adressen eða hafa samband í síma 891-7464.




