• Deutsch (DE-CH-AT)
  • English (United Kingdom)
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu
Söguslóðaleikurinn 2010 Prentvæn útgáfa

islforsida

 

10% afsláttur og happdrætti

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu standa fyrir léttum leik í sumar. Náðu þér í bækling samtakanna á næstu upplýsingamiðstöð eða hjá aðila í samtökunum og taktu þátt í leiknum.

Ef þú heimsækir EINN FÉLAGA í Samtökum um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) og færðu STIMPIL hjá honum á Íslandskortið í bæklingi samtakanna. Frá og með stimpli númer tvö færðu 10% söguslóðaafslátt af aðgangseyri hjá þeim félögum í SSF sem selja aðgang að safni eða sýningu. Það nægir að sýna bæklinginn með stimplinum. (Afslátturinn gildir ekki fyrir hópa).

Þegar þú hefur heimsótt FJÓRA FÉLAGA í SSF og fengið FJÓRA ÓLÍKA STIMPLA á Íslandskortið getur þú tekið þátt í Söguslóðahappdrætti SSF.  Þú klippir svörin út og Íslandskortið með stimplunum af bæklingnum og setur í kassa með merki SSF. Síðan nærð þú þér í nýjan bækling og heimsækir fleiri!

Dregið er í Söguslóðahappdrættinu tvisvar á ári um fimm góða vinninga í hvort skipti, fyrst 15. október 2010 og síðan 15. apríl 2011.

Athugið: Í flestum tilvikum fæst bæklingurinn stimplaður á viðkomandi safni, sýningu eða sögustað og þar er jafnframt svarkassi fyrir Söguslóðahappdrættið. Á sumum sögustöðum þar sem svarið leynist, en enginn er að störfum, er vísað á hvar stimplað er. Eins má fá upplýsingar um það á næstu upplýsingamiðstöð ferðamanna eða hér á heimasíðu SSF.  Svörin eru ekki gild nema stimplarnir fylgi með og þar er enginn þeirra eins!

 
 

Kort

September 2010 Október 2010
Su M& &t Mi Fi F& La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30

Bæklingar

vefaugl

 

Póstlisti