|
There are no translations available.
SAMÞYKKTIRfyrir Samtök um sögutengda ferðaþjónustu1. gr. Samtökin heita Samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Heimili þeirra og varnarþing fylgir heimili formanns hverju sinni. 2. gr. Markmið samtakanna er að efla sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi og að vera samráðsvettvangur þeirra aðila er stunda slíka ferðaþjónustu. Í upphafi skulu samtökin leggja áherslu á arfleifð íslenskra miðaldabókmennta, fyrstu aldir Íslandsbyggðar og miðaldamenningu. Markmiði sínu hyggjast samtökin ná með því að: + mynda tengslanet milli aðila í samtökunum + miðla þekkingu innan samtakanna + standa að sameiginlegri kynningu og markaðssetningu + stuðla að fagmennsku í sögutengdri ferðaþjónustu + stuðla að samstarfi við aðila sem vinna að sambærilegum málum innanlands og utan 3. gr. Félög, stofnanir, opinberir aðilar og fyrirtæki sem koma að sögutengdri ferðaþjónustu geta orðið fullgildir aðilar að samtökunum. Einstaklingar o.fl. geta einnig sótt um aukaaðild að samtökunum. Fyrir aukaaðild greiðist hálft árgjald en henni fylgir aðeins málfrelsi og tillöguréttur á félags- og aðalfundum. Ósk um aðild skal komið á framfæri við stjórn samtakanna og lögð fyrir aðalfund eða næsta félagsfund til samþykktar eða synjunar.
4. gr. Félagsfundir skulu haldnir eftir ákvörðun stjórnar hverju sinni og skulu þeir boðaðir með skriflegu fundarboði í síðasta lagi 10 dögum fyrir fundardag. Félagsfundir eru lögmætir sé löglega til þeirra boðað. Félagsfundur skal haldinn óski þriðjungur fullgildra félagsmanna þess. Á félagsfundum fer hver fullgildur aðili að samtökunum með eitt atkvæði. Í upphafi félagsfunda skal framvísa skriflegum umboðum um það hver fer með atkvæðisréttinn. Aðrir þeir er sitja félagsfundi á vegum aðila að samtökunum hafa málfrelsi og tillögurétt. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum á félagsfundum. 5. gr. Aðalfundur samtakanna hefur æðsta vald í málefnum þeirra. Skal aðalfundur haldinn í síðasta lagi 30. júní ár hvert. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað samkvæmt því sem segir um boðun félagsfunda í 4. gr. Verkefni aðalfundar eru: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Kynning og afgreiðsla aðildarumsókna. 3. Afgreiðsla reikninga. 4. Lagabreytingar. 5. Starfsáætlun fyrir komandi starfsár og fjárhagsáætlun. 6. Ákvörðun árgjalds. 7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga. 8. Önnur mál. 6. gr. Árgjald samtakanna skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Að öðru leyti fjármagna samtökin starfsemi sína með frjálsum framlögum, styrkjum og verkefnatengdum greiðslum.
7. gr. Stjórn samtakanna skal skipuð fimm mönnum: formanni, gjaldkera, ritara, sem jafnframt er varaformaður, og tveimur meðstjórnendum. Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi og skipta þeir með sér verkum. Varastjórn skipa tveir menn og skal hún kosin í einu lagi. Kosnir skulu tveir skoðunarmenn og tveir til vara. Kosið skal eftir tilnefningum fullgildra aðila. Kosning skal vera skrifleg ef tilnefningar koma fram um fleiri en nemur þeim embættum sem kosið er til hverju sinni. Kjörgengir eru þeir sem tilnefndir eru af hálfu fullgildra aðila á aðalfundi. Heimilt er að kjósa skoðunarmenn úr hópi utanfélagsmanna.
8. gr. Verkefni stjórnar skulu vera: + Að stýra málefnum samtakanna á milli aðalfunda.. + Vera málsvari samtakanna út á við. + Innheimta árgjöld aðildarfélaga. + Afla framlaga úr sjóðum opinberra aðila, stofnana eða fyrirtækja til þeirra verkefna sem samtökin hyggjast beita sér fyrir hverju sinni. + Varðveita sjóði félagsins og leggja fram endurskoðaða reikninga fyrir aðalfund.Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Hafi sex mánuðir liðið frá síðasta stjórnarfundi er formanni skylt að boða til fundar ef einn stjórnarmanna krefst þess. 9. gr. Samþykktum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.
10. gr. Samtökunum verður einungis slitið á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta fullgildra aðila og skal slíkrar tillögu getið í fundarboði. Við slit samtakanna skulu eigur þess renna til félagasamtaka sem hafa svipuð markmið.
|