• Icelandic(IS)
  • Deutsch (DE-CH-AT)
Iceland Saga Trail
Monthly View
Monthly View
Flat View
Flat View
Weekly View
Weekly View
Daily View
Daily View
Categories
Categories
Search
Search
Event: 'Haugsnes - Róðugrund - Flugumýri' Print
  Viðburðir
Almennir viðburðir
Date: Saturday, July 31, 2010 At 01:00 PM

Gengið á slóðir mannskæðasta bardaga Íslandssögunnar. Þátttakendur mæta við Syðstu-Grund. Þaðan er gengið að róðukrossi sem reistur var sumarið 2010 þar sem áður stóð kross til minningar um Brand Kolbeinsson sem féll hér 1246.
Næst er haldið á grundirnar neðan við Haugsnes þar sem búið er að koma fyrir fylkingum grjótherja, einn steinn fyrir hvern mann sem þátt tók í mannskæðasta bardaga Íslandssögunnar, Haugsnesbardaga.
Síðan er gengið sem leið liggur í átt að Flugumýri og farið yfir girðingu á prílu. Farið er neðst í hlíðinni og komið á Virkishól ofan við bæinn. Á hólnum eru friðlýstar fornminjar, en talið er að Kolbeinn ungi hafi reist þar virki. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir flatlendið og helstu höfuðból Ásbirninga. Næst liggur leiðin eftir göngustíg í gegnum skógarlund niður í kirkjugarðinn. Þvínæst er farinn smá spölur eftir heimreiðinni að Flugumýri að hliði. Þar er farið inní hestahólf og gengið sem leið liggur meðfram girðingunni að næsta hliði.
Áfram er haldið í átt að Haugsnesi, farið yfir prílu og þaðan að Syðstu-Grund.

Þessi ganga er frekar létt en smá hækkun á leiðinni á Virkishól. Tekur um 4 tíma. Leiðsögumaður Sigurður Hansen og þátttökugjald 2000 kr.



Search Calendar