Dagana 29. og 30. júlí 2010 mun Snorrastofa, í samvinnu við Sendráð Noregs á Íslandi, standa að dagskrá í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá því að húsnæði Snorrastofu var tekið í notkun þann 29. júlí árið 2000. Dagskráin, sem ber heitið "Norsk-islandske vennskapsdager", verða haldnir í Reykholti og munu eftirfarandi norskir og íslenskir fyrirlesarar og höfundar koma fram á þeim:
Thorvald Steen
Knut Ödegård
Þórunn Valdimarsdóttir
Jakob Ågotnes
Else Mundal
Jon Gunnar Jørgensen
Jan Ragnar Hagland
Margrét Ákadóttir
Jónas Kristjánsson
Þann 29. júlí verður lögð áhersla á Snorra í Noregi, en seinni daginn á Björnson á Íslandi en hann var vinsæll hér á landi á sínum tíma. Í ár eru liðin 100 ár frá því að Björnson lést, og stendur yfir svokallað „Björnson-år“ í Noregi af því tilefni.