Minjasafnið á Akureyri

ArfleifðByggingarÞjóðtrú

Minjasafnið  á Akureyri hefur frá upphafi verið í reisulegu íbúðarhúsi sem reist var 1934. Í því og sýningarsölunum frá 1978 eru sýningar safnsins. Stærsti gripur Minjasafnsins er svartbikuð timburkirkja stendur í Minjasafnsgarðinum sem var upphaflega byggð að Svalbarði austanmegin Eyjafjarðar árið 1846. Minjasafnsgarðurinn er ein af perlum Minjasafnsins og safngripur í sjálfu sér. Garðurinn er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum 1900.

Tvö skáldahús á Akureyri eru í umsjón safnsins. Nonnahús, við hlið minjasafnsins, var byggt 1849 og  var æskuheimili prestsins og skáldsins Jóns Sveinssonar (1857-1944).  Þekktastur var hann fyrir barnabækurnar um  Nonna og Manna sem þýddar voru á ýmis tungumál. Davíðshús, heimili Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi, var gert að safni árið 1965. Boðið er upp á leiðsögn um húsið. Ef þú ert á ferð með börn, ekki missa af Leikfangasafninu.

Gamli torfbærinn í Laufási, sunnan við Grenivík, er hluti af húsasafni Þjóðminjasafnsins sem Minjasafnið á Akureyri hefur umsjón með.


Tíu hugmyndir að afþreyingu á Akureyri og nágrenni:

  1. Skoðaðu fjölbreytta og heillandi list á Listasafni Akureyrar, einnig Flugsafn Íslands og Mótorhjólasafn Íslands þar í bæ.
  2. Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna. Þar eru tvær 25 metra laugar, þrjár nýjar rennibrautir og ein þeirra sú lengsta á Íslandi.
  3. Skoðaðu litríkan Lystigarðinn á Akureyri, sem var opnaður árið 2012 og er opinn yfir sumarið.
  4. Prófaðu stand-up paddleboarding, kajak róður eða einhverjar aðrar skemmtilegar vatnsíþróttir niðri við höfn.
  5. Aktu inn í Eyjafjarðarsveit og skoðaðu Jólahúsið, Smámunasafnið, kirkjurnar og fleiri staði.
  6. Farðu í nýju Skógarböðin við Akureyri. Einnig bjórböðin á Árskógssandi og smakkaðu á framleiðslunni, Kalda bjór.
  7. Komdu að vetri til og upplifðu skíðasvæðin á Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði og þyrluskíðaferðir frá Svarfaðardal.
  8. Farðu í hvalaskoðun frá Akureyri eða Ólafsfirði á ferð þinni um fallegan Eyjafjörðinn.
  9. Upplifðu friðæld Hríseyjar í miðjum Eyjafirði, sem er þekkt fyrir ríkulegt fuglalíf og hákarlaveiðisögu.
  10. Heimsæktu fallega fjallabæinn Siglufjörð, Síldarminjasafnið og veitingahús staðarins.

Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.visitakureyri.is or www.northiceland.is

Aðalstræti 58, 600 Akureyri
minjasafnid@minjasafnid.is
www.minjasafnid.is
462 4162
Opnunartímar:
  • Júní-september. Daglega kl. 11-17.
  • Október-maí. Daglega kl. 13-16.
LeiðsögnMinjagripasalaSýning
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is